Þær Ásta Björt Júlíusdóttir, Sandra Erlingsdóttir, Inga Hanna Bergsdóttir, Þóra Guðný Arnarsdóttir og Sirrý Rúnarsdóttir hafa allar verið boðaðar á landsliðsæfingar hjá árgangi 1998.
Æft verður í Fylkishöll og í Kaplakrika frá fimmtudegi til sunnudags.
Þjálfarar hópsins eru Halldór Stefán Haraldsson og Jón Gunnlaugur Viggósson.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.