Elisa aftur í byrjunarliði.

13.mar.2013  15:27
Elísa Viðarsdóttir fyrirliði ÍBV var aftur í byrjunarliði Íslenska landsliðsins í knattspyrnu.
Liðið mætti liði Ungverja í lokaleik sínum og sigraði 4-1.  Elísa spilaði allan leikinn og komst mjög vel frá sínu hlutverki eins og í leiknum á undan.  Þetta hlýtur að auka möguleika Elísu að komast aftur í lokahóp liðsins fyrir lokakeppnina í Svíþjóð í júlí.
 
ÍBV óskar Elísu innilega til hamingju með þennan árangur.