ÍBV-íþróttafélag vill koma á framfæri eftirfarandi skilaboðum vegna brottfarar línumannsins snjalla Ivönu Mladenovic.
Ivana fékk ekki atvinnu og dvalarleyfi vegna þess að of seint var farið af stað með hennar mál hvað varðar þessi leyfi. Ástæðan fyrir því að ekki fengust tilskilin leyfi er að hún var búin að vera á landinu í of langan tíma án tilskilinna leyfa.
ÍBV-íþróttafélga vill þakka Ivönu innilega vel fyrir sitt framlag í þágu ÍBV og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni.