Ester Óskarsdóttir, fyrirliði ÍBV, segir liðið vera reynslunni ríkara nú þegar það mætir Val í undanúrslitum Símabikarsins í handknattleik kvenna, kl. 13.30 í Laugardalshöll í dag. ÍBV og Valur mættust í úrslitum keppninnar fyrir ári og þá vann Valur öruggan sigur.
Ester segir lið ÍBV hafa styrkst frá síðasta ári. „Við erum reynslunni ríkari og eigum harma að hefna frá síðasta ári," segir Ester og undirstrikar að lið ÍBV hafi sýnt það á Íslandsmótinu að það geti vel veitt Val harða keppni.
Nánar er rætt við Ester á meðfylgjandi myndskeiði.
Sigurliðið úr viðureign ÍBV og Vals mætir sigurliðinu úr leik Fram og Gróttu í úrslitum Símabikarsins á morgun kl. 16 í Laugardalshöll.
http://www.mbl.is/sport/handbolti/2013/03/09/ester_eigum_harma_ad_hefna/