Sigríður Lára Garðarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir U-19 ára landsliðið í fyrsta leik þeirra á La-manga mótinu sem haldið er á Spáni en leikið var gegn Hollendingum. Íslenska liðið leiddi í hálfleik 3-0 en leikurinn endaði svo 3-1.
Sísí Lára stóð sig mjög vel sem miðvörður en hún leikur öllu jöfnu sem miðjumaður. Bæði mörkin komu eftir fast leikatriði.
Liðið leikur í dag gegn Skotum og er Sísí í byrjunarliðinu.
ÍBV óskar Sísí Láru innilega til hamingju með þennan árangur.