Sísí Lára komst í lokahóp U-19.

25.feb.2013  09:11
Lokahópur U-19 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu sem fer á La Manga á Spáni var valin í morgun.  ÍBV á einn fulltrúa í hópnum sem er Sigríður Lára Garðarsdóttir.  Liðið fer út 4.mars og leikur í ferðinni gegn Hollandi, Skotlandi og Frakklandi.  Ferðin er liður í undirbúningi liðsins fyrir milliriðil sem leikinn verður dagana 4-9.apríl n.k.
Þjálfarar liðsins eru Ólafur Guðbjörnsson og Úlfar Hinriksson.
 
ÍBV óskar Sísí Láru innilega til hamingju með þennan árangur.