Ákveðið hefur verið að afhenda búninga með æfingagjöldum annað hvert ár 2013, 2015, 2017.....
Reglur vegna búninga eru þessar:
· Aðeins iðkandi sem hefur gengið frá greiðslu æfingagjalda fær keppnistreyju frá félaginu.
· Þeir iðkendur sem byrja að æfa hjá félaginu á seinni hluta árs og greiða aðeins hálft æfingagjald fá ekki búning frá félaginu.
· ÍBV búninginn má aðeins nota til að keppa í.
· Ef iðkandi vill nota innanundirbol undir keppnistreyju skal bolurinn vera hvítur.
· Ætlast er til að foreldrar/forráðamenn sjái iðkendanum fyrir ÍBV stuttbuxum og sokkum sem eru m.a. til sölu í Axel Ó.
· Ef að búningur týnist eða eyðileggst þá þurfa foreldrar að útvega nýjan búning.
· Búningar verða að öllum líkindum afhentir í apríl.
ÍBV greiðir ferðakostnað í Íslandsmót hjá öllum flokkum. Þá fá börn sem æfa hjá félaginu frítt á alla heimaleiki ÍBV.
Þeir sem hafa ekki fengið greiðsluseðil frá félaginu geta nálgast samning um æfingagjöld hér. Hægt er að senda tölvupóst á sigfus@ibv.is eða koma í Týsheimilið á skrifstofutíma.