Sabrína Lind Adolfsdóttir var í morgun valin í lokahóp U-17 ára landsliðsins sem leikur æfingaleik gegn Dönum á þriðjudag. Sabrína hefur undanfarið æft með liðinu og með góðri frammistöðu tryggði hún sér sæti í lokahópnum.
Þjálfari liðsins er Úlfar Hinriksson.
ÍBV óskar Sabrínu innilega til hamingju með þennan árangur.