Þeir Friðrik Hólm og Breki Ómarsson voru í morgun valdir í úrtakshóp U-16 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu. Þeir félagar æfa um næstu helgi með liðinu og fara æfingarnar fram í Reykjavík.
Þjálfari liðsins er Freyr Sverrisson.
ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur.