Þær Sigríður Lára Garðarsdóttir og Svava Tara Ólafsdóttir voru í morgun báðar valdar til æfinga með U-19 ára landsliði Íslands í knattspyrnu. Æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir milliriðil EM 2013. Þjálfarar liðsins eru Ólafur Guðbjörnsson og Úlfar Hinriksson.
Þá var Sabrína Lind Adolfsdóttir valin til æfinga með U-17 ára landsliðinu en liðið undirbýr sig nú fyrir tvo leiki sem verða í lok janúar gegn Dönum.
Þjálfari liðsins er Úlfar Hinriksson.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.