Þrjár frá ÍBV í A-landsliðshóp kvenna.

22.des.2012  10:37
Þær Elísa Viðarsdóttir, Kristín Erna Sigurlásdóttir og Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir voru valdar í 40 manna æfingahóp A-landsliðs kvenna í knattspyrnu.  Þetta er liður í undirbúningi fyrir úrslitakeppni EM sem haldin verður í Svíþjóð í byrjun Júlí.  Hópurinn mun funda með Sigurði Ragnari Eyjólfssyni og Guðna Kjartanssyni þjálfurum liðsins milli jóla og nýárs.  Eftir það taka svo við æfingar og æfingaleikir.
 
ÍBV óskar stúlkunum innilega til hamingju með þenna árangur.