Þó nokkrir leikmenn ÍBV hafa verið boðaðir á æfingar hjá yngri landsliðum Íslands í handbolta.
Fimm stúlkur úr ÍBV voru boðaðar á æfingar hjá U-17 ára landsliðinu, Arna Þyrí Ólafsdóttir, Díana Dögg Magnúsdóttir, Erla Rós Sigmarsdóttir, Sandra Dís Sigurðardóttir og Sóley Haraldsdóttir voru allar valdar í 22.manna æfingahóp hjá liðinu.
Þeir Dagur Arnarsson, Nökkvi Dan Elliðason og Hákon Styrmisson voru allir valdir til æfinga hjá U-17 ára landsliði karla en sá hópur æfir milli jóla og nýárs. Eftir þær æfingar verður svo valin 18 manna hópur sem leikur þrjá landsleiki gegn Norðmönnum dagana 4-6.janúar.
Að lokum voru þeir Hreiðar Zoega, Bergvin Haraldsson og Svavar Grétarsson valdir til æfinga með U-18 ára landsliði karla.
ÍBV óskar þessum efnilegu krökkum innilega til hamingju með þennan árangur.