ÍBV og Fjölnir áttust við í 10.umferð í 1. deildinni í gær. Eyjamenn nánast léku sér að Fjölnismönnum en staðan í hálfleik var 23-7. Eyjamenn léku á 2.flokks leikmönnum en bættu samt bara meira í og endaði leikurinn 40-18.
Dagur Arnarsson spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik á móti Fjölni. En á föstudaginn skrifaði hann undir hjá ÍBV.
ÍBV óskar Degi til hamingju með samningin.