Fimm frá ÍBV í U-17.

05.des.2012  15:19
Fimm leikmenn frá ÍBV voru í dag valdar í U-17 ára landslið Íslands í handbolta.  Þetta eru þær Erla Sigmarsdóttir, Sóley Haraldsdóttir, Arna Þyrí Ólafsdóttir, Sandra Sigurðardóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir.  Liðið mun æfa milli jóla og nýárs í Reykjavík og eru æfingarnar liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM 2013.
Þjálfarar eru Díana Guðjónsdóttir og Unnur Sigmarsdóttir.
 
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.