Tvær frá ÍBV í U-19.

04.des.2012  08:56
Svava Tara Ólafsdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir voru í dag valdar til æfinga með U-19 ára landsliði Íslands í knattspyrnu.  Æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir milliriðil Evrópumótsins sem fram fer í Portúgal í Apríl.  Þjálfarar liðsins eru Ólafur Guðbjörnsson og Úlfar Hinriksson.
 
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.