Þeir Brynjar Gauti Guðjónsson, Guðmundur Þórarinsson og Víðir Þorvarðarson voru allir valdir til æfinga með U-21 ára landsliði Íslands í knattspyrnu. Æfingarnar fara fram á Reykjavíkursvæðinu um helgina. Þjálfarar liðsins eru Eyjólfur Sverrisson og Tómas Ingi Tómasson.
ÍBV óskar þessum efnilegu drengjum innilega til hamingju með þennan árangur.