Þeir Devon Már Griffin og Benjamín Elí Óskarsson voru báðir valdir á úrtaksæfingar hjá U-17 ára landsliði Íslands í knattspyrnu. Æfingarnar fara fram í Reykjavík um næstu helgi.
Þjálfarar liðsins eru Gunnar Guðmundsson og Freyr Sverrisson.
ÍBV óskar þessum efnilegu drengjum innilega til hamingju með þennan árangur.