Drífa í æfingahóp U-19.

22.nóv.2012  15:04
Í dag var valin æfingahópur U-19 ára landsliðs Íslands í handbolta.  ÍBV á einn fulltrúa í hópnum sem er Drífa Þorvaldsdóttir.  Drífa hefur þrátt fyrir ungan aldur nokkra reynslu af meistaraflokki enda staðið sig mjög vel þar.
Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu um helgina.
Þjálfarar liðsins eru Guðmundur Karlsson og Halldór Kristjánsson.
 
'IBV óskar Drífu innilega til hamingju með þennan árangur.