Sandra í æfingahóp.

20.nóv.2012  11:09
Sandra Erlingsdóttir var í dag valin í æfingahóp stúlkna fæddar 1998 hjá HSI.  Sandra sem er nýflutt aftur til eyja með foreldrum sínum hefur fallið vel inní sitt gamla umhverfi og staðið sig mjög vel.
Æfingarnar fara fram um næstu helgi á Reykjavíkursvæðinu.
Þjálfarar hópsins eru: Arnór Ásgeirsson, Halldór Haraldsson og Jón Viggóson.
 
ÍBV óskar Söndru innilega til hamingju með þenna árangur.