Tvær frá ÍBV í undirbúningshóp U-19.

19.nóv.2012  08:47
Þær Svava tara Ólafsdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir voru báðar valdar í undirbúningshóp hjá U-19 ára landsliði Íslands í knattspyrnu.  Liðið tekur þátt í milliriðli Evrópumótsins í apríl n.k. 
Liðið mun æfa um helgina á Reykjavíkursvæðinu.  Þjálfarar hópsins eru Ólafur Guðbjörnsson og Úlfar Hinriksson.
 
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.