Eyjólfur Sverrisson og Tómas Ingi Tómasson hafa valið æfingahóp hjá U-21 landsliði Íslands í knattspyrnu. Þeir félagar völdu þrjá frá ÍBV í hópinn. Brynjar Gauti Guðjónsson, Guðmundur Þórarinsson og Víðir Þorvarðarson eru allir valdir frá félaginu.
Æfingarnar fara fram í Kórnum um næstu helgi.
ÍBV óskar þessum leikmönnum innilega til hamingju með þennan árangur.