Það verður mikið um ferðalög hjá ÍBV-íþróttafélagi um helgina. A.m.k 410 manns munu ferðast á vegum félagsins bæði í handbolta og fótbolta. Að baki þessum ferðalögum liggur mikil skipulagsvinna þar sem ekki er nóg að komast á keppnisstað og til baka heldur er gríðarlega mikið um skutl milli keppnis og gististaða innan Reykjavíkur.
Það verður því mikið álag á farkostum félagsins sem hafa heldur betur sannað gildi sitt til þessa.
ÁFRAM ÍBV.