Þær Díana Guðjónsdóttir og Unnur okkar Sigmarsdóttir hafa valið æfingahóp í U-17 ára landsliði Íslands í handbolta. Hópurinn samanstendur af leikmönnum fæddar 1996 og 1997.
Þær völdu fimm leikmenn frá ÍBV. Erla Sigmarsdóttir, Sandra Sigurðardóttir, Sóley Haraldsdóttir, Arna Þyrí Ólafsdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir voru allar valdar.
Æfingarnar fara fram dagana 23-25.nóvember.
Allar hafa þessar stúlkur leikið framúrskarandi vel með sínum flokkum það sem af er vetri. Þær hafa einnig fengið smjörþefinn af meistaraflokki.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.