Þeir Jón Ingason, Kristinn Skæringur Sigurjónsson og Sigurður Grétar Benonýsson voru í gær allir valdir í æfingahóp U-19 ára lis Íslands í knattspyrnu. Æfingarnar fara fram á Reykjavíkursvæðinu um næstu helgi.
Þjálfari liðsins er Kristinn R. Jónsson fyrrum þjálfari mfl.karla ÍBV.
ÍBV óskar þessum efnilegu drengjum innilega til hamingju með þennan árangur.