Það er gaman að líta yfir þjálfaralista meistaraflokka félagsins þessa stundina en það eru eingöngu uppaldir sannir eyjamenn sem þar eru að verki. Í meistaraflokki karla í handbolta er Arnar Pétursson þjálfari og honum til aðstoðar er Erlingur Richardsson. Í meistaraflokki kvenna í handbolta er Svavar Vignisson þjálfari. Í meistaraflokki karla í fótbolta er Hermann Hreiðarsson þjálfari. Í meistaraflokki kvenna í fótbolta er Jón Ólafur Daníelsson þjálfari og honum til aðstoðar Bryndís Jóhannesdóttir.
Það er sennilega fátítt að heimamenn gegni svo mörgum stöðum í einu félagi.
Þetta er eitthvað sem við eyjamenn getum verið stolt af.
ÁFRAM ÍBV.