Sabrína Lind áfram í æfingahóp hjá U-19.

05.nóv.2012  16:08
Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari U-19 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu valdi Sabrínu Lind Adolfsdóttur áfram í æfingahóp U-19 ára landsliðsins sem æfir nú um helgina á Reykjavíkursvæðinu.
Sabrína sem er fyrsti leikmaðurinn úr samstarfinu við KFR til að gera samning við ÍBV er vel að þessu vali komin en hún var einn besti varnarmaður landsins í 3.flokki í sumar.
 
ÍBV óskar Sabrínu Lind innilega til hamingju með þennan árangur.