Þrjár frá ÍBV á æfingar hjá U-17.

26.okt.2012  14:15
Úlfar Hinriksson þjálfari U-17 ára liðs Íslands í knattspyrnu hefur valið þrjá leikmenn ÍBV á æfingar nú um helgina.  Sabrína Lind Adolfsdóttir, Hrafnhildur Hauksdóttir og Bergrún Linda Björgvinsdóttir eru allar í æfingahópnum sem æfir í Reykjavík.
Þetta val kemur í kjölfar góðrar frammistöðu þeirra með liði sínu í sumar.
 
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.