Þeir Ásgeir Elíasson og Elliði Snær Viðarsson voru báðir valdir til æfinga með úrtakshóp U-16 ára landsliði Íslands í knattspyrnu fyrr í mánuðinum. Þeir voru ásamt 38 öðrum drengjum valdir í fyrsta úrtakið en í janúar verður valin annar hópur og má þá búast við því að aðrir drengir úr ÍBV verði fyrir valinu. Næsta sumar verður svo valin einn hópur úr þessum tveimur hópum til æfinga.
Báðum drengjunum gekk vel að sögn Freys Sverrisonar þjálfara.
ÍBV óskar Ásgeiri og Elliða Snæ innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.