Háttvísiverðlaun.

03.okt.2012  13:17
Lokahóf KSI var haldið á mánudagskvöld í Hörpunni í Beinni útsendingu sjónvarpsins.  ÍBV hlaut annað árið í röð háttvísiverðlaun KSI.  Þá var Anna Þórunn Guðmundsdóttir valin prúðasti leikmaður deildarinnar.  Anna Þórunn er vel að þessu vali komin þar sem hún leikur afar erfiða stöðu til að hljóta þessa útnefningu.  Danka Podovac var valin í lið ársins en það kom á óvart að lið í 2.sæti ætti aðeins einn fulltrúa þar.
 
ÍBV óskar stúlkunum til hamingju með þenna árangur.