Fyrsti kvenleikmaðurinn úr samstarfi við KFR sem gerir samning við meistaraflokk.

03.okt.2012  10:23
Sabrína Lind Adolfsdóttir er fyrsti kvennleikmaðurinn úr samstarfinu við KFR sem gerir samning við meistaraflokk félagsins.  Sabrína er sannarlega merki þess hversu vel samstarfið við KFR gengur.  Sabrína var einn besti leikmaður 3.flokks í sumar ásamt því að leika stórt hlutverk í vörn 2.flokks.  Sabrína er flutt til Vestmannaeyja til að geta tekið þátt í Akademíu ÍBV og FÍV.  Sabrína bankar fast á dyr U-17 ára landsliðsins og verður spennandi að fylgjast með henni í framtíðinni.
 
ÍBV óskar Sabrínu innilega til hamingju með þennan áfanga.