Tveir úr ÍBV í lokahóp U-17.

25.sep.2012  09:01
Gunnar Guðmundsson hefur valið þá Kristinn Skæring Sigurjónsson og Sigurð Grétar Benonýson í lokahóp U-17 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu fyrir undankeppni EM sem haldin verður á Möltu 29.sept - 4.okt.  Ísland leikur í riðli með Portúgal, Noregi og Möltu og verður spennandi að sjá hvernig liðinu mun vegna.
 
ÍBV óskar þessum efnilegu drengjum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.