Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna valdi í morgun Elísu Viðarsdóttur fyrirliða ÍBV í undirbúningshóp sinn fyrir umspilsleikina mikilvægu gegn Úkraníu sem leiknir verða seint í október.
Þetta eru góðar fréttir fyrir Elísu þar sem hún þurfti að draga sig úr hópnum fyrir leikina gegn Noregi og N.Írlandi vegna meiðsla.
Hópurinn mun æfa stíft í Reykjavík fram að þessum leikjum.
ÍBV óskar Elísu innilega til hamingju með þennan árangur.