Ólafur Guðbjörnsson þjálfari U-19 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu hefur valið æfingahóp fyrir Evrópukeppnina sem hefst í október. Ólafur valdi þær Sigríði Láru Garðarsdóttur og Svövu Töru Ólafsdóttur í hópinn sem kemur saman um næstu helgi til æfinga í Reykjavík. Liðið mun æfa reglulega fram að mótinu sem haldið verður í Danmörku.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.