2.flokkur kláraði með stæl.

13.sep.2012  19:42
2.flokkur kvenna sigraði síðasta leik sinn í Íslandsmótinu í gær er liðið sótti lið HK/Vikings heim.  Leikurinn var mjög fjörugur en ÍBV stjórnaði leiknum og átti nokkur fín færi en tókst ekki að skora. Seint í hálfleiknum urðu svo varnarmanni ÍBV á slæm mistök sem sóknarmaður heimastúlkna náði að nýta sér og skoraði eina mark fyrri hálfleiks.  Í seinni hálfleik héldu ÍBV stúlkur áfram að stjórna leiknum og skorðuðu tvö mjög góð mörk áður en yfir lauk.  Sigríður Lára Garðarsdóttir skoraði bæði mörkin.  ÍBV sigraði því deildina og leikur í A-deilda að ári.  Glæsilegur árangur hjá þessum efnilegu stúlkum.
 
ÍBV óskar stúlkunum innilega til hamingju með þenna árangur.