Úlfar Hinriksson landsliðsþjálfari Íslands U-17 kvenna í knattspyrnu hefur valið undirbúningshóp fyrir árgang 1998 sem tekur þátt í úrslitakeppni EM sem haldin verður á Íslandi í júní 2015.
Hópurinn kemur saman dagana 13-15.september á Reykjavíkursvæðinu.
Úlfar valdi frá ÍBV þær Jóhönnu Helgu Sigurðardóttur, Díönu Helgu Guðjónsdóttur og Sigríði Sæland Óðinsdóttur.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.