Síðasti leikurinn á morgun.

07.sep.2012  12:54
Á morgun tekur ÍBV á móti KR í síðasta leik sumarsins í kvennaboltanum.  Leikurinn verður á Hásteinsvelli og hefst kl. 14.00.  
ÍBV lék í vikunni gegn stjörnunni á útivelli og gerði sér lítið fyrir og sigraði 3-1 með mörkum frá Sísí Láru, Shaneku og Kristínu Ernu.  ÍBV komst í 3-0 og hefði hæglega getað farið í 5-0 en nýtti ekki tvö dauðafæri.  Lið Stjörnunnar komst svo meira inní leikinn og minnkaði muninn á 65.mín.  Þegar 3.mín voru til leiksloka fékk Stjarnan vítaspyrnu sem ekki nýttist þannig að lokatölur vour 3-1 fyrir ÍBV.
Bæði Stjarnan og ÍBV eru með 35 stig og ÍBV einu marki betur þannig að það verður spennandi að fylgjast með lokaumferðinni þar sem baráttan um 2.sætið verður æsispennandi.
 
Við hvetjum alla til að mæta á völlinn og hvetja ÍBV til sigurs.
 
Áfram ÍBV.