Elísa í A-landsliðið.

05.sep.2012  15:30
Sigurður Ragnar Eyjólfsson valdi í dag 22.manna lokahóp fyrir hinn mikilvæga landsleik gegn Noregi í knattspyrnu.  Elísa Viðarsdóttir var valin frá ÍBV og verður þvi í hópnum með systur sinni Margréti Láru.  Þetta er gífurlega góður árangur hjá Elísu sem hefur sannarlega unnið fyrir þessu með dugnaði sínum.
ÍBV óskar Elísu innilega til hamingju með þennan árangur.