Tvær í úrtakshóp U-16 ára.

01.ágú.2012  15:42
Úlfar Hinriksson þjálfari U-16 og 17 ára landsliðsins í knattspyrnu hefur valið þær Díönu Dögg Magnúsdóttur og Júíönu Sveinsdóttur í úrtakshóp stúlkna sem  fæddar eru 1997 og æfa saman dagana 10-12.ágúst á Laugarvatni.
Þessar æfingar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir næsta Norðurlandamót.
 
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju.