Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari valdi í dag Þær Kristínu Ernu Sigurlásdóttur, Elísu Viðarsdóttur og markvörðinn Bryndísi Láru Hrafnkelsdóttur í landsliðshóp U-23 ára landsliðs Íslands sem leikur æfingaleik gegn landsliði Skota ytra um Verslunarmannahelgina. A-landslið Íslands leikur einnig æfingaleik gegn liði Skota í þessari ferð. Engin frá ÍBV er í A-hópnum en það á eftir að velja tvo leikmenn úr U-23 hópnum í verkefnið með A-liðinu.
ÍBV óskar þessum frábæru leikmönnum innilega til hamingju.