Stúlkunum í 2.flokki kvenna hefur gengið mjög vel það sem af er íslandsmóti. Stúlkurnar eru nú í 2.sæti B-deildar á eftir Stjörnunni. Stúlkurnar léku í vikunni háspennu leik gegn Haukum í Hafnarfirði. Haukar komust í 2-0 eftir aðeins 10.mínútur en rétt fyrir leikhlé minnkaði fyrirliðinn Sara Rós muninn með góðum skalla eftir hornspyrnu. Á 60.mínútu jafnaði svo María Davis muninn eftir mikla baráttu í teig Hauka. Á 85.mínútu fékk ÍBV vítaspyrnu sem fór forgörðum en á 90.mínútu skoraði Karítas sigurmarkið með glæsilegu skoti utan teigs og tryggði glæsilegar 3-2 sigur.
Næsti leikur hjá stúlkunum er á föstudag gegn Fjölni í Grafarvogi.
ÁFRAM IBV.