Shellmótið hafið

28.jún.2012  09:40
Þá er Shellmótið farið á fullt hér í Eyjum. Talið er að á fjórða þúsund manns verði í bænum um helgina í tengslum við mótið. Veðrið leikur við peyjana og er ekki að sjá annað en þannig eigi það að vera fram yfir mót. Setningin verður svo á Týsvellinum í kvöld og hefst hún með skrúðgöngu klukkan 18.30. Hægt er að nálgast allar upplýsingar um mótið inná vef mótsins, shellmot.is.