ÍBV - Valur tímasetning og yfirlýsing

28.jún.2012  18:49
 Þá er komið að heimaleik í pepsí deildinni hjá ÍBV eftir mánaðarpásu. Leikurinn er á föstudaginn 29. júní klukkan 17:00.
Mikilvægt er að stuðningsmenn taki eftir því að tímasetningin er 17:00 sem er mjög svo óvenjuleg og í raun óásættanlegt. Knattspyrnudeild ÍBV gerði allt sem í þeirra valdi stóð til að halda upphaflegri tímasetningu sem var 20:00. Valsmenn fóru fram á breytinu á tímasetningu vegna gistipláss í Eyjum væri allt fullt þessa helgina og ekki er hægt að komast frá Eyjunni eftir 20:30.
 
Tímasetningin 17:00 var þá eina sem var í boði vegna Shellmóts, en hátalarakerfi og tilheyrandi hávaði fer í gang á Týssvellinum strax 18:50.
 
Við biðjumst innilegrar afsökunar á þessari tímasetningu en vonum að stuðningsmenn ÍBV sýni skilning á því að knattspyrnudeild ÍBV gerði allt sem í þeirra valdi stóð.
 
 
F.h. knattspyrnudeildar ÍBV
Valur Smári Heimisson