Kvennalið ÍBV verður í beinni útsendingu næstu tvo leiki í Pepsídeildinni. Á sunnudag ferðast liðið til Akureyrar og etur kappi við topplið deildarinnar Þór/KA. Þriðjudaginn 3.júlí tekur liðið svo á móti Stjörnunni sem situr í 2.sæti deildarinnar nú.
Báðir leikirnir eru sýndir beint á stöð 2 sport í opinni dagskrá.
Áfram ÍBV.