ÍBV vann stórsigur á liði Selfoss í gær 7-1 er liðin mættust á Hásteinsvelli. ÍBV náði forystu strax á 5.mínútu með marki frá Dönku. Á 9.mínútu bætti Danka svo við öðru marki beint úr aukaspyrnu. Kristín Erna bætti við þriðja marki ÍBV á 17.mínútu en Selfyssingar minnkuðu muninn strax 1.mínútu síðar eftir góða skyndisókn. ÍBV stúlkur voru ákveðnar að láta Selfyssinga ekki komast inní leikinn því aðeins þremur mínútum síðar bætti Vesna við marki og tveimur mínútum eftir það skoraði Shaneka 5.mark ÍBV. Á 33.mínútu fullkomnaði Danka svo þrennu sína og Anna Þórunn skoraði svo 7.mark ÍBV á 45.mínútu.
Seinni hálfleikurinn var ekki jafn fjörugur og sá fyrri en ekkert mark var skorað. Lokatölur því 7-1 fyrir ÍBV. Allir leikmenn liðsins eiga mikið hrós skilið fyrir frábæran sigur.
Næsti leikur liðsins er gegn toppliði Þórs/KA á Akureyri þann 24.júní.