Vetrarlok ÍBV- Íþróttafélags

15.maí.2012  10:10
Á morgun, miðvikudag verður veturinn gerður upp hjá ÍBV-Íþróttafélagi. Allir þeir sem hafa komið að starfi ÍBV í vetur eru boðnir velkomnir í Höllina. Húsið opnar kl: 19.30 og hefst borðhald stundvíslega kl: 20.00.
 
Boðið er uppá veglegt veisluborð að hætti Einsa Kalda....
 
Forréttarborð
Ruccola salat, með hunangsmelónu, mangó, ristuðum hnetum og parmessankexi

Innbakaðir sjávarréttir með hvítvínskremi

Gratineraður steinbítur með sítrónu-rósmarínsósu
Ricotta osti og grænmeti

Pönnusteiktur skötuselur með blaðlauks cous-cous

Steikarborð
Folaldapiparsteik ásamt bökuðu grænmeti, pönnusteiktum kartöflum og piparostasósu

Lamba prime með fersku kartöflusalati, kremuðu hvítkáli og rauðvínssósu