Þeir Dagur Arnarsson, Nökkvi Dan Elliðason og Hákon Daði Styrmisson hafa allir verið valdir til úrtaksæfinga með U-16 ára landsliðið Íslands í handbolta. Æfingarnar fara fram í Reykjavík seinna í þessum mánuði.
Þjálfari liðsins er Selfyssingurinn Einar Guðmundsson.
ÍBV óskar þessum efnilegu drengjum innilega til hamingju með þennan árangur.