Auður Ósk Hlynsdóttir í Þrótt.

10.maí.2012  14:57
Auður Ósk Hlynsdóttir sem hefur verið varamarkvörður ÍBV síðustu ár er gengin til liðs við Þrótt.  Auður verður kvödd með söknuði enda eðalpersóna og gríðarlega mikill liðsmaður.  Auður varð íslandsmeistari bæði með 3.og 2.fokki félagsins og verður hennar því sárt saknað um leið og við óskum henni velferðar hjá nýju félagi.
Félagið leitar nú logandi ljósi að nýjum markverði þar sem félagið er einungis með einn markvörð.