Stúlkurnar í 2.flokki léku til úrslita í Faxaflóamótinu gegn Fylki. Fylkisstúlkum nægði jafntefli til sigurs. ÍBV náði forystunni með marki frá Söru Rós undir lok leiks en á síðustu mínútu leiksins náðu Fylkisstúlkur að jafna metin og stóðu því uppi sem sigurvegarar.
Meistaraflokkur félagsins lék gegn ÍA og sigruðu 2-0. Mörkin gerðu Vesna og Sísí Lára.