Drengirnir í 5.flokki yngra ár í handbolta gerðu góða ferð á Akureyri um helgina. Þeir lentu í 3.sæti í mótinu og tryggðu sér í leiðinni 3.sæti í íslandsmótinu. Þetta er frábær árangur hjá þessum efnilegu drengjum.
Þjálfari drengjana er Grétar Eyþórsson.
ÍBV óskar þessum efnilegu drengjum innilega til hamingju með þennan árangur.