Drífa Þorvaldsdóttir var valin í lokahóp U-20 ára landsliðs Íslands í handbolta. Þetta er frábær árangur hjá Drífu sem er einungis 18 ára gömul. Liðið tekur þátt í undankeppni HM í Tyrklandi dagana
6.-8.apríl. Liðið mun leika gegn Rússum, Rúmenum og Tyrkjum.
Þjálfarar liðsins eru Guðmundur Karlsson og Halldór Harri Kristjánsson.
ÍBV óskar Drífu innilega til hamingju með þenna frábæra árangur.